Taktu prófið!

Íslensk erfðagreining býður þér að taka þátt í rannsókn á hæfileikunum til að skynja tóna og takt í tónlist.

Í rannsókninni beinum við sjónum að öllu hæfileikarófinu; frá tón- og taktblindu, sem einkennast af lagleysi og erfiðleikum við að halda takti, að snilligáfu í takti og tónum.

 

Hvað felst í þátttöku?

Þátttaka í rannsókninni tekur um 25 mínútur og felur í sér að svara spurningalista og leysa stutt verkefni á vefsíðunni. Við lok verkefnisins fá þátttakendur upplýsingar um frammistöðu sína.

 

Hverjir geta tekið þátt?

Allir eldri en 18 ára geta tekið þátt, hvort sem þeir telja sig vera með gott eða slæmt tóneyra, vera taktvissir eða taktlausir, eða einhvers staðar þar á milli.

Upplýsingar um verkefnið í síma 520-2800 eða rannsokn@rannsokn.is © 1997 – 2020 Íslensk erfðagreining ehf. Allur réttur áskilinn.